Fáanlegt í App Store fyrir iPad
Grunnskólastærðfræði þar sem barnið skrifar í alvöru.
iPad-forrit þar sem barnið þitt skrifar útreikninginn sjálft, skref fyrir skref, eins og á blaði.
Gervigreindarkennari les rithöndina, segir hvað var rétt, hvað má laga og hvernig. Barnið skrifar alla lausnina sjálft, eins og á blað.
Á iPad færðu kóða fyrir mánuð frítt. Á Android kemstu í prófunarhópinn.
Veldu heiminn, veldu hetjuna
Ég vildi ekki að barnið mitt lærði stærðfræði með því að pota í skjá.
Opnaðu nánast hvaða stærðfræðiapp sem er og undir niðri er sama vélin. Fjórir valmöguleikar, einn réttur, pot, glimmer, næsta spurning. Barn getur giskað sig upp í langa röð réttra svara og ekkert lært. Sum öppin eru orðin meiri leikur en stærðfræði, og stærðfræðin sem eftir er minnir helst á að lemja moldvörpur ofan í holur.
Talnabox sér ekki hugsunina og getur því hvorki verðlaunað hana né leiðrétt. Barn sem slær bara inn lokatölur er að æfa sig í að slá inn lokatölur. Uppsetningin, röð skrefanna, að áætla stærðina áður en reiknað er: þarna er stærðfræðin, og ekkert af því kemst fyrir í einu poti.
Þetta forrit er blað. Skjárinn er rúðustrikað blað, penninn er penni og það er ekkert til að pota í fyrir stig. Barnið skrifar lausnina alla, eins og í stílabók. Svo er lesið það sem það skrifaði. Öll vinnan, ekki bara lokatalan: hvort dæmið var rétt sett upp, hvort skrefin voru í röð og hvar barninu skrikaði fótur. Endurgjöfin kemur á nokkrum sekúndum, meðan dæmið er enn fyrir framan barnið.
Stærðfræði á blaði, eins og hún hefur alltaf verið. Með einhvern við hliðina sem hefur alltaf tíma. Kennari með þrjátíu nemendur í stofunni nær aldrei að fara yfir hvert skref hjá hverju barni, hversu góður sem hann er.
Krossaspurningar eiga heima í stuttum prófum þar sem verið er að kanna stöðuna hratt. Í æfingum biðjum við aldrei um kross að fyrra bragði, en þær koma enn fyrir þegar skrifuðu dæmin í dæmabanka færninnar klárast. Við erum að skrifa fleiri. Markmiðið er að öll æfing sé skrifuð.
Hver stendur á bak við þetta
Ég heiti Björn Orri Guðmundsson. Ég er faðir og verkfræðingur, og stofnandi og forstjóri Aftra, sem sýnir stjórnendum hvernig fyrirtækin þeirra líta út frá sjónarhóli tölvuþrjóta. Næsta stig smíðaði ég af því að ég vildi betra verkfæri fyrir mitt eigið barn.
Viltu ná í mig? hae@naestastig.app · lettfeti.com
Svona virkar þetta
-
Stöðumat
Barnið byrjar á stuttu stöðuprófi, skrifuðu með penna. Forritið metur hvar barnið stendur og hvar á að byrja.
-
Daglegur skammtur
Um 20 mínútur á dag: æfing, orðadæmi og upprifjun á réttum tíma svo kunnáttan haldist.
-
Hvert dæmi er skrifað
Barnið leysir dæmin með penna og sýnir útreikningana. Svar með útreikningi gefur margfalt fleiri stig en svarið eitt, svo það borgar sig aldrei að giska.
-
Endurgjöf á nokkrum sekúndum
Kennarinn les skriftina, segir hvað var rétt og gefur vísbendingu í stað þess að gefa upp svarið.
-
Borðið opnast við kunnáttu
Hver eining endar á lokabardaga. Næsta eining opnast við 80% árangur, ekki eftir því sem tíminn líður. Skrímsli, gripir og tignir halda uppi fjörinu, en það er kunnáttan sem opnar dyrnar.
Fáanlegt í App Store.
Sæktu forritið á iPad og byrjaðu. Fyrstu fjórtán dagarnir eru fríir í App Store, eða heill mánuður með kóða af prufusíðunni.
- Verð: 11,99 USD á mánuði eða 119,99 USD á ári í íslensku App Store. Ein áskrift gildir fyrir tvö börn.
- Penni: barnið skrifar með Apple Pencil eða Logitech Crayon. Ódýr gúmmípenni virkar líka ef kveikt er á Fingur í forritinu, en þá er engin lófavörn og höndin má ekki hvíla á skjánum.